Fotbolti.net
15.06.26 - 20:49
Daníel Smári Magnússon

Rúnar Kristins: Bara eins og að byrja Íslandsmótið upp á nýtt

Auglýsing
Rúnar Kristinsson var afskaplega ánægður með að landa sigrinum, en fannst óþarfi að hleypa KA mönnum svo nærri jafnteflinu.

Rúnar Kristinsson var afskaplega ánægður með að landa sigrinum, en fannst óþarfi að hleypa KA mönnum svo nærri jafnteflinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Bara gríðarlega ánægður að landa þessu eftir að við hleypum þeim inn í leikinn í restina eftir okkar hornspyrnu. Við erum alveg eins og krakkar að hleypa þeim fram í skyndisókn. Ég var ósáttur við það og ósáttur við fyrsta markið líka, en það verða alltaf einhver mistök á leiðinni,'' sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, eftir fjörugan 3-4 sigur á KA í Bestu-deild karla í kvöld.

Hann hélt áfram: „Fyrri hálfleikur fannst mér vera eins og einhver æfingaleikur, hitinn og veðrið í dag held ég að hafi sett smá strik í reikninginn. Menn voru fljótt þreyttir og ég held að það hafi verið nær að vera með vatnspásu í þessum leik en á HM!''

Leikurinn bar þess merkis að það var líkt og leikmenn væru spenntar beljur á vorin - svona í kjölfar landsleikjapásunnar.

„Þetta er bara eins og að byrja Íslandsmótið uppá nýtt. Við reyndum að hafa æfingaleik þarna einhversstaðar á milli, en það er erfitt þar sem að 1. og 2. deildin er að spila og það var bikarumferð í gangi. Við reyndum að spila á æfingu, en það verður aldrei það sama. Þess vegna veit maður aldrei hvernig menn koma undan "sumri". Ég sagði fyrir leikinn að við værum á góðum stað í deildinni og á góðu "rönni", svo að fá 17 daga pásu var ekkert sérstaklega þægilegt fyrir okkur. Ég hugsa að það hafi verið kærkomið fyrir lið eins og KA, að geta unnið í þáttum sem að hafa farið illa, ná mönnum til baka úr meiðslum og annað slíkt og fannst KA liðið bara flott í dag. Það er fullt af góðum fótboltamönnum í þessu liði, en þegar það byrjar að ganga illa að þá er oft erfitt að vinna sig útúr því,'' sagði Rúnar.

En var Atli Þór ósáttur með að vera skipt útaf þegar hann átti möguleika á þrennunni?

„Ég hugsa það! En Atli er stór og þungur, hitinn mikill og hann var kannski orðinn frekar orkulítill og á móti erum við 4-2 yfir. Róbert er eldfljótur að hlaupa og fengum Jakob (Byström) líka. Báðir strákar búnir að spila síðustu tvo leiki og skora mörk fyrir okkur í báðum, bara erfitt að velja þessa fremstu línu. Ég held að við höfum gert þetta rétt í dag því Atli skoraði tvö í dag, Vuk stóð sig vel en svo gera Róbert og Jakob vel í að landa þessum sigri,'' sagði Rúnar Kristinsson.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.