Fotbolti.net
15.07.09 - 13:45
Magnús Már Einarsson

Richard Eckersley til Burnley (Staðfest)

Richard Eckersley til Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Burnley hefur fengið hægri bakvörðinn Richard Eckersley til liðs við sig frá Manchester United.
Þessi tvítugi leikmaður hefur gert fjögurra ára samning við Burnley eftir að hafa hafnað nýjum samningi hjá United.

Burnley mun þó ekki fá Eckersley frítt því að félagið þarf að borga United uppeldisbætur fyrir leikmanninn.

Eckersley lék fjóra leiki með aðalliði United á síðustu leiktíð, þar af tvo í ensku úrvaldseildinni.

Hann er fimmti leikmaðurinn sem Burnley fær í sumar en áður hafði félagið krækt í Tyrone Mears, Steven Fletcher, David Edgar og Brian Easton.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.