15.07.09 - 14:01
Magnús Már Einarsson
Hjörtur Júlíus Hjartarson í Selfoss (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson

Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson
Hjörtur Júlíus Hjartarson, framherji Þróttar, hefur formlega gengið í raðir Selfyssinga.
Hjörtur, sem er 34 ára gamall, er kominn með leikheimild með Selfyssingum og getur því leikið með liðinu gegn KA í fyrstu deildinni á laugardag.
Í sumar hefur Hjörtur skorað tvö mörk í níu leikjum í Pepsi-deildinni en hann var ekki með Þrótti í síðasta leik liðsins gegn Fram.
Hjörtur lék lengst af á sínum ferli með ÍA en síðustu þrjú ár hefur hann leikið með Þrótti.
Hann skoraði átján mörk sumarið 2007 og hjálpaði Þrótti að komast í efstu deild þar sem hann skoraði átta mörk á síðustu leiktíð.