15.07.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Damir Muminovic í HK (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK hefur fengið Damir Muminovic til liðs við sig úr varaliði sínu Ými í þriðju deildinni.
Damir, sem er tvítugur varnarmaður, er uppalinn hjá HK en hann lék meðal annars í efstu deild með liðinu árið 2008.
Í fyrra lék Damir með HK fyrri hluta sumars áður en hann fór í Hvöt á láni.

Í vetur fór Damir síðan í Ými en hann hefur nú gengið aftur í raðir HK og verður löglegur fyrir leik liðsins gegn ÍA í kvöld.
HK hefur einnig fengið Ahanda Brice til liðs við sig en hann mun einungis leika með öðrum flokki fyrst um sinn. Brice kemur frá Sviss en hann er hálfbróðir Hervé Aka\'a leikmanns HK.