15.07.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Anton Bjarnason í KFS (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

KFS úr þriðju deild hefur fengið Anton Bjarnason á láni frá ÍBV en hann fær leikheimild með liðinu í dag.
Anton er örfættur en hann getur leikið bæði sem kantmaður og bakvörður.

Anton hefur í sumar leikið tvo leiki í Pepsi-deildinni með ÍBV og einn leik í Valitor-bikarnum.
Alls hefur Anton skorað fjögur mörk í 58 leikjum með ÍBV á ferli sínum.
Hann þekkir til í herbúðum KFS eftir að hafa verið á láni hjá liðinu sumarið 2009 þar sem hann skoraði sjö mörk í tíu leikjum í þriðju deildinni.
Anton getur leikið með KFS þegar liðið mætir KV í B-riðli þriðju deildarinnar á morgun.