Fotbolti.net
15.07.11 - 08:00
Mist Rúnarsdóttir

Edda María í Stjörnuna (Staðfest)

Edda María er á leið í Garðabæinn

Edda María er á leið í Garðabæinn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Edda María Birgisdóttir gengur til liðs við Stjörnuna í félagaskiptaglugganum en þetta staðfestir hún í viðtali við Fótbolta.net sem birtist hér síðar í dag.
Edda María hefur leikið með ÍBV í Pepsi-deildinni í sumar en heldur nú aftur til Stjörnunnar þar sem hún lék frá árinu 2008 og þangað til um mitt síðasta sumar þegar hún skipti yfir til ÍBV.

Þar áður lék hún með Fjölni þar sem hún er uppalin en hún á að baki 111 meistaraflokksleiki og 3 landleiki með U17 ára liði Íslands.

Lið Stjörnunnar er sem stendur í 1. sæti Pepsi-deildarinnar með 24 stig þegar deildin er hálfnuð en þar skammt á eftir koma lið Vals með 22 stig og lið ÍBV með 19 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.