Fotbolti.net
15.07.11 - 16:13
Hafliði Breiðfjörð

Alexander Doni til Liverpool (Staðfest)

Alexander Doni er orðinn leikmaður Liverpool.

Alexander Doni er orðinn leikmaður Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool staðfesti í dag að markvörðurinn Alexander Doni sé genginn til liðs við félagið frá AS Roma á Ítalíu.
Markvörðurinn skrifaði undir samning við félagið í dag eftir að hafa gengist undir læknisskoðun en frá þessu var greint á opinberum vef Liverpool rétt í þessu.

Doni á að baki 10 landsleiki fyrir Brasilíu. Hann spilaði 179 leiki með Roma á sex leiktíðum og vann þar ítalska bikarinn tvisvar og ofurbikarinn einu sinni.

Hann er 31 árs gamall og lék með Brasilíu á Suður Ameríkubikarnum árið 2007.

Heimild: Vefur Liverpool

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.