15.07.11 - 21:10
Brynjar Ingi Erluson
Stewart Downing til Liverpool (Staðfest)

Stewart Downing er kominn til Liverpool

Mynd: Getty Images

Stewart Downing er kominn til Liverpool

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur fest kaup á enska landsliðsmanninum Stewart Downing frá Aston Villa.
Downing, sem er 26 ára gamall vængmaður stóðst læknisskoðun hjá félaginu fyrr í dag og skrifaði í kjölfarið undir langtímasamning en þetta kom fram á heimasíðu félagsins nú rétt í þessu.
Kaupverðið er talið vera um 20 milljónir punda, en Villa hafði áður hafnað tveimur tilboðum frá Liverpool áður en liðið samþykkti þetta boð.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem Liverpool fær í sumar, en þegar hefur félagið fengið Jordan Henderson, Charlie Adam og þá kom brasilíski markvörðurinn Alexander Doni til liðsins í dag.
Downing lék 79 leiki og skoraði 8 mörk á tveimur árum sínum hjá Villa og var hann meðal annars valinn besti leikmaður félagsins á síðustu leiktíð. Þá hefur hann leikið 27 leiki fyrir enska landsliðið.

Heimild: Heimasíða Liverpool FC