Fotbolti.net
15.08.06 - 14:31
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Isaksson kominn til Man City (staðfest)

Andreas Isaksson

Andreas Isaksson

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hafa nú endanlega gengið frá kaupunum á sænska landsliðsmarkverðinum Andreas Isaksson frá franska félaginu Renns fyrir tvær milljónir punda.
Isaksson, sem hefur staðist læknisskoðun og skrifað undir samning við félagið, er ætlað að fylla skarð David James sem fór til Portsmouth.

Búist er við því að Isaksson hoppi beint inní byrjunarliðið hjá City í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar gegn Chelsea.

,,Þetta er stór klúbbur, það eru margir góðir leikmenn í hópnum og mér hlakkar til að spila hérna,” sagði Isaksson á heimasíðu félagsins.

,,Mér finnst enska deildina sú besta í heimi. Hún er erfið en ég ólst upp við hana í sjónvarpinu í Svíþjóð svo það hefur alltaf verið draumur minn að spila á Englandi.”
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.