15.08.10 - 09:37
Brynjar Ingi Erluson
Fyrrum leikmaður Crystal Palace í Magna (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Magni á Grenivík hefur fengið vænan liðsstyrk fyrir komandi átök í þriðju deildinni, en þeir fengu Daniel Badu frá Njarðvík á dögunum.
Badu, sem er 23 ára gamall miðjumaður fór á reynslu hja Njarðvík í apríl síðastliðnum, en spilaði einungis einn mótleik með félaginu og ákvað því að söðla aðeins um.
Magni á Grenivík tókst að tryggja sér þjónustu hans undir lok félagaskiptigluggans núna í júlí og hefur hann þegar leikið tvo leiki og skorað eitt mark þar sem Magni berst fyrir sæti um að komast í úrslitakeppnina í þriðju deildinni.
Á unglingsárum Badu þá var hann í akademíu Crystal Palace sem leikur í Championship deildinni á Englandi áður en hann fór að spila í sunnudagsdeildinni þar sem honum bauðst ekki framlenging á samning sínum.
Magni er sem stendur í 2. sæti D-riðils í þriðju deildinni með 22 stig þegar ein umferð er eftir og þá getur liðið tryggt sér í úrslitakeppnina með því að ná stigi gegn Huginn í síðasta leik riðilsins.