15.10.07 - 14:33
Magnús Már Einarsson
Grétar Sigfinnur til KR (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Varnarmaðurinn Grétar Sigfinnur Sigurðarson hefur ákveðið að ganga til liðs við sitt gamla félag KR og mun hann gera fjögurra ára samning við félagið á næstu dögum.
,,Ég er búinn að taka þessa ákvörðun en ég er ekki búinn að skrifa undir," sagði Grétar við Fótbolta.net í dag.
Grétar hefur leikið með Víkingi frá árinu 2003 en hann verður samningslaus um áramót og getur því farið til frítt til KR.
Þessi 25 ára gamli leikmaður er uppalinn hjá KR en hann lék með Val á láni árið 2005 og hefur hann verið orðaður við bæði félögin að undanförnu. Hann ákvað hins vegar að fara í uppeldisfélag sitt KR.
Í sumar lék Grétar alla átján leiki Víkings í Landsbankadeildinni og í fyrra gerði hann slíkt hið sama og skoraði tvö mörk.