Fotbolti.net
15.10.09 - 16:54
Hafliði Breiðfjörð

Pétur Markan í Fjölni (Staðfest)

Pétur eftir undirskriftina í dag.

Pétur eftir undirskriftina í dag.

Canon

Mynd: Fjölnir

Pétur Georg Markan er genginn til liðs við Fjölni að nýju frá Val og skrifaði rétt í þessu undir tveggja ára samning við Grafarvogsfélagið.

Pétur hafði áður leikið með Fjölni á árunum 2005 - 2008 og þekkir því vel til hjá félaginu sem hann verður nú með allavega næstu tvö árin.
Hann skoraði þrjú mörk í fimmtán leikjum með Val í Pepsi-deildinni sumar en hann kom til félagsins frá Fjölni fyrir tæpu ári síðan.

Fjölnir var spútnik lið Pepsi-deildarinnar á síðasta ári en í sumar gekk liðinu illa og endaði að lokum í næst neðsta sæti deildarinnar og féll þar með.

Því er ljóst að liðið leikur í 1. deildinni á næstu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.