Fotbolti.net
15.11.06 - 22:17
Hafliði Breiðfjörð

Þórhallur Dan og Goran Lukic í Hauka (Staðfest)

Frá undirskriftinni í kvöld.  Goran Lukic er lengst til vinstri ásamt syni sínum, þá kemur Páll Guðmundsson, Þórhallur Dan og Albert Högni Arason fyrirliði. Fyrir aftan eru Andri Marteinsson og Garðar þjálfari 2. flokks.

Frá undirskriftinni í kvöld. Goran Lukic er lengst til vinstri ásamt syni sínum, þá kemur Páll Guðmundsson, Þórhallur Dan og Albert Högni Arason fyrirliði. Fyrir aftan eru Andri Marteinsson og Garðar þjálfari 2. flokks.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haukar sem leika í 2. deild karla á næstu leiktíð fengu mikinn liðsstyrk í kvöld þegar Þórhallur Dan Jóhannsson og Goran Lukic gengu í raðir félagsins. Nýráðinn þjálfari liðsins er Andri Marteinsson.
Þórhall Dan þarf ekki að kynna fyrir neinum en hann hóf ferilinn hjá Fylkismönnum þar sem hann spilaði lengst af á ferli sínum. Hann á að baki 151 leik í efstu deild hér á landi með Fylki, Fram og KR. Hann hefur skorað í þeim leikjum níu mörk. Auk þess hefur hann spilað fjölda leikja í 1. deild með Fylki.

Hann lék síðast með Fram sumarið 2005 en ákvað að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið. Þrátt fyrir að hafa ekki spilað í alvöru liði í heilt ár hefur hann leikið með utandeildarliðum og var nokkuð eftirsóttur í sumar því nokkur félög höfðu áhuga á honum, sum vildu hann sem spilandi þjálfara. Hann valdi hinsvegar að snúa aftur sem leikmaður hjá Haukum.

Þórhallur sem er 34 ára gamall hefur leikið tvo leiki með A landsliði Íslands auk fjölda leikja með yngri landsliðunum. Hann hefur einnig leikið með Vejle í Danmörku.

Goran Lukic er 34 ára gamall og kemur frá Stjörnunni í Garðabæ. Hann er að snúa aftur til Hauka því hann fór þaðan í Stjörnuna sumarið 2004. Hann lék 16. leiki með Stjörnunni í 1. deildinni í sumar og skoraði eitt mark. Hann hefur einnig leikið með Víði og Grindavík hér á landi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.