Fotbolti.net
16.01.07 - 06:00
Ítalska deildin

Lazio fær Luis Anonio Jimenez lánaðan (Staðfest)

Leikmenn Lazio eru að fá liðsstyrk. Ousmane Dabo er væntanlega ánægður með það.

Leikmenn Lazio eru að fá liðsstyrk. Ousmane Dabo er væntanlega ánægður með það.

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Lazio hefur gengið frá lánssamningi við Luis Anonio Jimenez. Hann er 22 ára gamall og kemur frá Chile en hann á að baki nokkra landsleiki fyrir sína þjóð.
Jimenez þykir skemmtilegur leikmaður en hann er sóknarsinnaður miðjumaður sem getur þó brugðið sér í allra kvikinda líki framarlega á vellinum. Hann kemur til Lazio á átján mánaða lánssamningi en félagið á svo rétt á því að kaupa hann árið 2008.

Jimenez var í láni hjá Fiorentina á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði þrjú mörk í nítján leikjum í Serie-A deildinni.

Heimild: AFP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.