16.01.07 - 19:32
David Weir til Rangers (Staðfest)

David Weir, í öngum sínum hjá Everton.

Mynd: Getty Images

David Weir, í öngum sínum hjá Everton.

Mynd: Getty Images
Skoski landsliðsmaurinn David Weir gekk í dag í raðir Rangers í heimalandi sínu. Weir fékk að rifta samningi sínum hjá Everton og skrifaði hann undir samning út tímabilið en hann er 36 ára gamall miðvörður. Walter Smith, sem er nýtekinn við Rangers, þekkir vel til Weir frá tíma sínum með landsliði Skota.
"Ég hef haft þá ánægju að vinna með Walter áður og ég get ekki beðið eftir því að byrja að vinna með honum aftur á Ibrox. Þetta er frábært tækifæri fyrir mig á þessu tímabili ferils míns," sagði Weir við heimasíðu Rangers eftir að hann skrifaði undir samninginn.
Nokkur lið í ensku 1. deildinni vildu fá Weir til sín en hann hefur spilað 52 landsleiki fyrir Skota og kemur með gríðarlega reynslu í vörn Rangers sem berst eins og venjulega við Celtic um titilinn í Skotlandi.
Útlitið er reyndar ekki gott fyrir liðið sem er með 42 stig í öðru sæti deildarinnar en Celtic trónir á toppnum með 59 stig.

Heimild: BBC