Fotbolti.net
16.01.08 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Sigþór Snorrason í Leikni (Staðfest)

Sigþór í leik með BÍ í sumar

Sigþór í leik með BÍ í sumar

Canon

Mynd: Guðmundur Karl

Vestfirðingurinn Sigþór Snorrason hefur fengið félagaskipti í Leikni í Breiðholti frá BÍ. Sigþór er fæddur 1985 og var fyrirliði Ísafjarðarliðsins en alls á hann 70 mótsleiki að baki með BÍ.
Hann hefur æft með Leikni í nokkurn tíma og lék með liðinu í æfingaleik gegn Aftureldingu á dögunum þar sem hann spilaði sem hægri bakvörður. Hann verður orðinn löglegur með Leikni á föstudag þegar liðið mætir KR í Reykjavíkurmótinu.

Þá er sóknarmaðurinn Þór Ólafsson aftur genginn í raðir Leiknis en hann lék með Gróttu seinni hluta Íslandsmótsins í fyrra.

Á dögunum skrifuðu þrír framtíðarleikmenn Leiknis undir samninga við félagið en þeir eru allir á 2. flokks aldri. Það eru kantmaðurinn Aron Fuego Daníelsson, miðjumaðurinn Brynjar Hlöðversson og sóknarmaðurinn Ólafur Hrannar Kristjánsson.

Leiknir náði sínum besta árangri frá upphafi síðasta sumar þegar liðið hafnaði í sjötta sæti 1. deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.