Fotbolti.net
16.01.08 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Ítalska deildin

Lucarelli til Parma (Staðfest)

Lucarelli í leik með Livorno gegn Roma.

Lucarelli í leik með Livorno gegn Roma.

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalski framherjinn Cristiano Lucarelli er óvænt kominn í ítölsku deildina að nýju eftir að hafa gengið í raðir Parma frá Shakhtar Donetsk í Úkraínu næstum hálfu ári upp á dag eftir að hann fór til úkraínska liðsins.
Kaupverðið er 5,7 milljónir evra en Lucarelli sem er 32 ára gamall hafði komið til Shakhtar frá AS Livorno á 8 milljónir evra í júlí.

Hann hefur átt erfitt með að vinna sér fast sæti í liðinu hjá Shakthar og vildi því snúa aftur heim til Ítalíu þar sem það voru Parma sem unnu baráttuna um að næla í hann. Þar hefur hann nú gert þriggja og hálfs árs samning.

Hann skoraði fjögur mörk í 12 leikjum í Úkraínu auk þess ssem hann skoraði önnur fjögur í níu leikjum í Meistaradeild Evrópu og forkeppni hennar.

Lucarelli var fyrsti Ítalinn sem spilar í Úkraínu en áður en hann fór þangað hafði hann leikið í Serie A deildinni ítölsku með Livorno þar sem hann skoraði 94 mörk í 146 leikjum.

Hann lék sinn fyrsta landsleik 8. júní 2005 í 1-1 jafntefli gegn Serbíu & Svartfjallalandi og hefur síðan leikið fimm leiki til viðbótar og skorað 3 mörk.

Áður en hann fór til Livorno hafði Lucarelli spilað með AC Perugia, Cosenza Calcio, Calcio Padova 1910, Atalanta BC, US Lecce, Torino og Valencia á Spáni.

Heimild: UEFA.com

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.