16.01.08 - 09:09
Hörður Snævar Jónsson
Grétar Rafn semur við Bolton (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grétar Rafn Steinsson gekk í gær í raðir Bolton frá AZ Alkmaar en Grétar skrifaði undir fjögurra samning við liðið.
Bolton er sem stendur í 15 sæti ensku úrvaldsdeildarinnar með 20 stig eftir 22 leiki en liðið missti sinn besta mann, Nicolas Anelka í síðustu viku.
Grétar Rafn fór til reynslu hjá Bolton árið 2002 ásamt Ellert Jóni Björnssyni en hvorugu þeirra fékk samning hjá félaginu þá.
Grétar gekk svo í raðir Young Boys árið 2005 og lék með liðinu í innan við ár áður en hann gekk í raðir AZ Alkmaar þar sem hann hefur verið þangað til núna.
Grétar Rafn framlengdi samning sinn við Alkmaar í nóvember á síðasta ári.
Hann mun leika í treyju númer 15 hjá Bolton en hann mun hitta fyrrum félaga sinn hjá landsliðinu, Heiðar Helguson sem er að stíga upp úr meiðslum.
Grétar Rafn er sjötti Íslendingurinn sem er í herbúðum Bolton, áður höfðu þeir Guðni Bergsson, Eiður Smári Guðjohnsen og Arnar Gunnlaugsson, Ólafur Páll Snorrason og nú Heiðar Helguson.