16.01.08 - 16:50
Magnús Már Einarsson
Kevin Keegan tekur óvænt við Newcastle að nýju (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Newcastle United staðfesti fyrir skömmu að Kevin Keegan hafi verið ráðinn stjóri liðsins að nýju og tekur hann við liðinu af Sam Allardyce sem var rekinn í síðustu viku.
Keegan sem er 56 ára stýrði Newcastle áður frá árinu 1992 til 1997. Hann kom liðinu upp í ensku úrvalsdeildina árið 1993 og tímabilið 1995/1996 endaði liðið í öðru sæti deildarinnar á eftir Manchester United.
Gerard Houllier og Didier Deschamps hafa verið sterklega orðaðir við stjórastöðu Newcastle að undanförnu en Keegan hefur núna verið ráðinn.
Hann var fyrst orðaður við stjórastöðuna ásamt Alan Shearer en í viðtali við BBC í lok síðasta árs sagðist hann ekki búast við að fara aftur út í þjálfun.
Annað hljóð var í Keegan á mánudag þegar hann sagði síðan: ,,Ég útiloka sjálfan mig ekki. Þetta er félag sem ég elska, fólk veit það."
Þessi fyrrum þjálfari enska landsliðsins hefur verið með fótboltasirkus í Glasgow síðan hann hætti sem stjóri Manchester City í mars 2005 en nú er ljóst að hann mun koma í ensku úrvalsdeildina að nýju.

Heimild: BBC