Fotbolti.net
16.01.09 - 09:03
Hafliði Breiðfjörð

Sylvain Wiltord lánaður til Marseille (Staðfest)

Sylvain Wiltord.

Sylvain Wiltord.

Canon

Mynd: Getty Images

Sylvain Wiltord fyrrverandi framherji franska landsliðsins er genginn í raðir Marseille í heimalandinu á sex mánaða lánssamningi frá öðru frönsku liði, Rennes.
,,Hann hefur gert sex mánaða samning,\" sagði Marseille á vefsíðu sinni í gær.

,,Við fengum tækifæri til að fá hann í sex mánuði. Við þurfum reyndan leikmann sme mun koma með eitthvað í búningsklefann og hefur fyrirmyndar hugarfar,\" sagði Eric Gerets þjálfari Marseille á fréttamannafundi í gær.

Wiltord sem er fyrrverandi leikmaður Arsenal er 34 ára gamall í dag skoraði 26 mörk í 92 leikjum með franska landsliðinu á árunum 1999 - 2006.

Hann var í liði Frakka sem vann EM 2000 og skoraði jöfnunarmarkið gegn Ítalíu í úrslitaleiknum. Hann kom líka inná sem varamaður í úrslitaleik HM 2006 er þeir töpuðu fyrir Ítalíu. Hann hafði aðeins tekið þátt í sex leikjum í frönsku deildinni til þessa með Rennes.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.