16.01.09 - 15:43
Magnús Már Einarsson
Sveinbjörn Jónasson í Grindavík (Staðfest)

Sveinbjörn og Jón Gíslason formaður Grindvíkinga.

Mynd: Grindavík

Grindavík hefur fengið framherjann Sveinbjörn Jónasson frá Fjarðabyggð en hann hefur skrifað undir samning við félagið.
Sveinbjörn æfði með Grindavík í haust en hann æfði einnig með, Val, Fjölni og Þrótti í og fleiri félög voru í myndinni hjá honum.
,,Ég var tilbúinn að taka næsta skref og Grindavík hentaði bara mjög vel. Strákarnir í liðinu frábærir, góð umgjörð og það hentar mér að spila hér. Mér hefur boðist áður að spila í úrvalsdeild en ákvað að stökkva á þetta tækifæri,\" sagði Sveinbjörn við heimasíðu Grindavíkur en honum líst vel á þjálfarann Milan Stefán Jankovic.
,,Hann er með skemmtilegar æfingar og mér líkar vel við þennan bolta sem hann vill að við spilum, stuttar sendingar og á jörðinni.\"
Sveinbjörn sem er 22 ára gamall skoraði 13 mörk í 22 leikjum Fjarðabyggðar í 1. deildinni í sumar auk þess sem hann skoraði eitt mark í tveimur bikarleikjum. Hann hafði komið til félagsins í febrúar frá Huginn þar sem hann hóf feril sinn.
Sveinbjörn lék í treyju númer 6 hjá Fjarðabyggð síðastliðið sumar og mun gera slíkt hið sama hjá Grindavík á komandi tímabili.