16.01.09 - 16:36
Magnús Már Einarsson
Ariza Makukula til Bolton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Bolton hefur fengið framherjann Ariza Makukula á láni frá Benfica út tímabilið.
Makukula hafnaði lánssamningi frá West Bromwich Albion í vikunni og í dag var staðfest að Bolton hefði samið við leikmanninn.
Bolton hefur möguleika á að kaupa Makukula á 4,5 milljónir punda í sumar ef hann stendur sig vel á meðan hann er í láni.
Makukula er 27 ára gamall og kemur frá Kongó en hann er hins vegar með portúgalskt vegabréf og hefur leikið með portúgalska landsliðinu.
Á ferli sínum hefur Makukula leikið með Sevilla, Salamanca, Real Valladolid og Gimnastic Tarragona á Spáni, Nantes í Frakklandi sem og í Portúgal.

Heimild: BBC