Fotbolti.net
16.01.21 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sæunn framlengir - „Staðráðin í að koma sterkari til baka"

Sæunn framlengir - „Staðráðin í að koma sterkari til baka"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Sæunn Rós Ríkharðsdóttir hefur framlengt samning sinn við Fylki til tveggja ára, til loka árs 2022.

Sæunn Rós, sem er 21 árs gömul, er uppalin hjá félaginu og hefur leikið alls 47 leiki fyrir meistaraflokk félagsins í Íslandsmóti og bikarkeppni og skorað í þeim fimm mörk.
Sæunn Rós varð fyrir því óláni að slíta krossbönd í öðrum leik sínum síðasta sumar.

,Hún hefur verið í stífri endurhæfingu sl. mánuði sem gengið hefur vel og er hún staðráðin í að koma sterkari til baka þegar fram líða stundir," segir í tilkynningu Fylkis í gær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.