16.02.06 - 06:04
Magnús Már Einarsson
Ingi Rafn í ÍBV (Staðfest)

Ingi Rafn tekur "skærin" í leik gegn Fjarðbyggð síðastliðið sumar.

Mynd: Guðmundur Karl

Ingi Rafn tekur "skærin" í leik gegn Fjarðbyggð síðastliðið sumar.

Mynd: Guðmundur Karl
Ingi Rafn Ingibergsson hefur fengið félagaskipti úr Selfoss í ÍBV en hann hefur æft með Eyjamönnum og spilað með þeim æfingaleiki að undanförnu.
Þessi 22 ára gamli leikmaður getur leikið í sókninni á öðrum hvorum kantinum eða á miðjunni en hann hefur leikið með Selfyssingum undanfarin tvö ár.
Í fyrra gerði hann eitt mark í fimmtán leikjum í annarri deildinni með Selfyssingum og kom það gegn Stjörnunni í fjórtándu umferð en hann gerði alls fjögur mörk í fyrra séu allir leikir taldir með.
Í fyrra gerði hann eitt mark í fimmtán leikjum í annarri deildinni með Selfyssingum og kom það gegn Stjörnunni í fjórtándu umferð en hann gerði alls fjögur mörk í fyrra séu allir leikir taldir með.
Heimild: Heimasíða Selfoss
