16.02.06 - 16:57
Hafliði Breiðfjörð
Ágúst Örlaugur Magnússon í Víking (Staðfest)
Skagamenn fá leikmann frá Skallagrími

Ágúst Örlaugur í leik með ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Guðmundsson

Ágúst Örlaugur í leik með ÍA.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Guðmundsson
Skagamaðurinn Ágúst Örlaugur Magnússon er genginn í raðir Víkinga og fékk félagaskipti frá ÍA í dag. Ágúst er tvítugur og var lánaður til KS á síðari hluta síðasta tímabils.
Samningur hans við ÍA rann út um síðustu áramót og hann hafði æft undanfarnar vikur með Víkingum og lék með þeim æfingaleik um daginn.
Sumarið 2004 var hann valinn besti leikmaður annars flokks ÍA og efnilegasti leikmaður meistaraflokks ÍA. Hann hefur leikið sjö landsleiki með U-17 og U-19 ára landsliðum Íslands.
Þá hafa Skagamenn fengið Helga Val Kristinsson frá Skallagrími í sínar raðir en Helgi Valur er 23 ára gamall og getur leikið sem miðvörður eða miðjumaður. Hann ólst upp hjá ÍA en gekk í raðir Skallagríms árið 2003 og er því kominn aftur heim.
Sjá einnig:
Hin hliðin á Ágústi