16.02.07 - 14:32
Magnús Már Einarsson
Víðir Leifsson í Fylki (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson
Kant og bakvörðurinn Víðir Leifsson hefur gert tveggja ára samning við Fylki en þetta staðfesti hann við Fótbolti.net nú í dag. Víðir sem er uppalinn hjá FH hefur æft með Fylki að undanförnu og leikið æfingaleiki með liðinu þar sem hann hefur mest spilað sem vinstri bakvörður.
Hann hefur verið án félags síðan hann ákvað að yfirgefa Fram síðastliðið haust.
Víðir sem er 23 ára gamall gekk til liðs við Fram fyrir tveimur árum. Hann lék þrettán leiki í Landsbankadeildinni 2005 og tvo leiki í fyrstu deildinni síðastliðið sumar með Fram.
Hann hefur þegar fengið leikheimild með Fylki og er því löglegur með liðinu gegn Stjörnunni í Lengjubikarnum á morgun.