16.02.08 - 12:23
Davíð Örn Atlason
Chris Vorenkamp í Víking R (Staðfest)

Vorenkamp

Mynd: Jón Óskar Þórhallsson

Vorenkamp

Mynd: Jón Óskar Þórhallsson
Christopher Steven Vorenkamp, fyrrum leikmaður ÍBV og Fram hefur gert eins árs samning við Víking Reykjavík.
Vorenkamp, sem getur bæði spilað í stöðu varnarmanns og miðjumanns hefur æft með liðinu og spilað æfingaleiki að undanförnu og skoraði meðal annars þrennu í stórsigri Víkinga gegn Reyni Sandgerði.
Vorenkamp er 28 ára Bandaríkjamaður og lék með ÍBV á árunum 2005-2006. Fram fengu leikmanninn til sín á miðju sumri 2006 og hann lék með þeim fimm leiki og skoraði eitt mark.
Síðan í marsmánuði á síðasta ári gekk hann til liðs við 3. deildar liðsins Ými. Úr Ými fór hann til Svíþjóðar en er nú kominn í Víking og verður löglegur með liðinu 20. febrúar næstkomandi en vegna undanþágu í félagaskiptareglum má hann spila strax í Reykjavíkurmótinu.
Vorenkamp mun því sennilega leika sinn fyrsta leik fyrir félagið gegn Fylki í Reykjavíkurmótinu á morgun klukkan 17:00.