Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   sun 16. febrúar 2020 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Andre Gomes sneri aftur inn á fótboltavöllinn
Andre Gomes.
Andre Gomes.
Mynd: Getty Images
Portúgalski miðjumaðurinn Andre Gomes sneri í dag aftur inn á fótboltavöllinn.

Gomes meiddist illa í leik gegn Tottenham í nóvember á síðasta ári. Ökkli hans fór úr lið og leit það gríðarlega illa út.

Gomes hefur sem betur fer náð skjótum bata. Hann spilaði í dag 60 mínútur þegar aðallið Everton spilaði æfingaleik við leikmenn úr U23 liði félagsins.

Hann komst í gegnum leikinn og mun núna halda áfram að æfa í von um að geta verið í hópnum gegn Arsenal eftir viku.

Everton er þessa stundina í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Everton hefur gengið vel að ná í góð úrslit eftir að Ítalinn Carlo Ancelotti tók við í desember á síðasta ári.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner