Eddie Howe þjálfari Newcastle var ekki sáttur með dómgæsluna í sigri gegn Aston Villa í enska bikarnum um helgina.
14.02.2026 21:01
Howe kvartaði undan skrýtinni dómgæslu
Hann kvartaði undan dómgæslunni eftir leik og talaði svo um að dómarar væru að treysta alltof mikið á tæknina í nútíma fótbolta. Chris Kavanagh og dómarateymi hans klúðruðu að minnsta kosti þremur stórum ákvörðunum á Villa Park.
„Tæknin er að skapa nýjar venjur fyrir dómarana þar sem þeir sleppa því að dæma útaf því að þeir vita að VAR-teymið mun skerast inn í ef þeir misstu af stóru atviki. Þetta gerir ákvarðanatöku þeirra lélegri en hún var áður," sagði Howe meðal annars eftir sigurinn.
„Ég er á báðum áttum með VAR. Ég hef sagt þetta oft útaf því að ég elska tilfinningarnar í fótbolta svo mikið. Þegar þú setur boltann í netið og sérð engan dómara setja neitt út á það, þá er þetta mark. Það getur enginn tekið það frá þér. Mér finnst VAR eyðileggja þessa tilfinningu.
„Aftur á móti þá vildi ég óska þess að VAR hefði verið notað í þessum leik. VAR er sanngjarnara og getur leiðrétt afar slæm og kostnaðarsöm mistök eins og þessi í dag. Sem betur fer unnum við leikinn.
„Dómarar eru ekki að taka rangar ákvarðanir viljandi, þeir eru að starfa eftir sinni bestu vitund, en við sáum það í dag hversu slæm mistökin geta orðið án aðstoðar frá tækninni."
15.02.2026 08:30
Emery: VAR er nauðsynleg tækni
Athugasemdir



