Fotbolti.net
16.03.07 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Chris Vorenkamp í Ými (Staðfest)

Chris Vorenkamp í Ými (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Steingrímur Valgarðsson

Varnar og miðjumaðurinn Chris Vorenkamp hefur gengið til liðs við Ými (HK-B) úr þriðju deildinni en þetta kemur fram á heimasíðu HK.
Chris sem er 26 ára gamall lék með ÍBV sumarið 2005 og á síðasta tímabili hafði hann leikið þrettán leiki í Landsbankadeildinni með Eyjamönnum áður en hann gekk til liðs við Fram. Þar skoraði hann eitt mark í fimm leikjum í fyrstu deild karla.

Chris hefur æft með HK í vetur en samkvæmt heimasíðu félagsins ákvað hann að taka sér frí frá því að spila í efstu deildum í ár og mun hann þess í stað æfa með HK og spila með Ými.

Hann mun leika sinn fyrsta leik með Ými þegar að liðið mætir Hvöt í Lengjubikarnum á sunnudaginn en þar munu þrír leikmenn úr HK einnig leika.

Það eru markvörðurinn Betir Ólafsson og þeir Gísli Freyr Ólafsson og Bjarki Már Sigvaldason. Beitir var í láni hjá Aftureldingu í annarri deild á síðustu leiktíð en Gísli og Bjarki Már áttu báðir við meiðsli að stríða þá.

Heimild: Heimasíða HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.