Fotbolti.net
16.03.07 - 14:50
Magnús Már Einarsson

Guðjón Lýðsson í Breiðablik (Staðfest)

Guðjón (til hægri) í leik með 2.flokki Hauka á síðasta tímabili.

Guðjón (til hægri) í leik með 2.flokki Hauka á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Miðjumaðurinn Guðjón Pétur Lýðsson hefur gengið til liðs við Breiðablik frá Haukum en þetta staðfesti Ólafur Kristjánsson þjálfari Blika við Fótbolti.net í dag.
Guðjón sem verður tvítugur síðar á þessu ári skoraði eitt mark í þrettán leikjum með Haukum í fyrstu deildinni á síðustu leiktíð og þá lék hann einnig tvo leiki í VISA-bikarnum.

Leikheimild Guðjóns með Breiðablik tekur gildi á morgun og því getur hann ekki leikið með liðinu gegn ÍA í Lengjubikarnum í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.