Fotbolti.net
16.03.08 - 16:49
Magnús Már Einarsson

Stefán Þór til Norrköping á láni (Staðfest)

Stefán Þór í leik með Norrköping.

Stefán Þór í leik með Norrköping.

Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

IFK Norrköping sem leikur í sænsku Allsvenskunni hefur fengið Stefán Þór Þórðarson á láni frá ÍA í einn mánuð.
Stefán Þór samdi við ÍA síðastliðið haust eftir að hafa leikið með Norrköping undanfarin ár.

Á heimasíðu Skagamanna segir að Norrköping hafi ekki tekist að fylla skarð Stefáns og því hafi félagið falast eftir því að fá hann á láni í mánuð.

Stefán kemur aftur til baka í lok apríl og verður því í góðu standi þegar að Íslandsmótið hefst 10.maí en þá taka Skagamenn á móti Breiðablik.

Annar Skagamaður leikur með Norrköping en það er Garðar Bergmann Gunnlaugsson sem fór á kostum þegar að liðið sigraði sænsku 1.deildina á síðustu leiktíð.

Heimild: Heimasíða ÍA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.