16.04.05 - 09:19
Hafliði Breiðfjörð
Óskar Pétursson til Ipswich (Staðfest)

Óskar Pétursson markvörður úr Grindavík skrifaði á fimmtudag undir tveggja ára samning við enska 1. deildarfélagið Ipswich Town. Óskar sem er á sextánda aldursári hafði samþykkt samninginn munnlega snemma í mars en samningurinn var ekki undirritaður við félagið fyrr en á fimmtudag.
Óskar þykir mikið efni og hefur allt frá því í fyrrasumar vakið mikla athygli en þá fékk enska 1. deildarfélagið Wolves hann tvisvar til reynsluæfinga. Fyrst í ágúst og svo aftur í október.
Hann fór svo til æfinga hjá Ipswich í febrúar og þótti standa sig það vel að fulltrúi félagsins kom hingað til lands til að ræða við foreldra hans um hugsanlegan samning sem nú hefur verið undirritaður.
Auk Wolves og Ipswich höfðu norsku meistararnir í Rosenborg sýnt leikmanninum áhuga og viljað fá hann til æfinga hjá sér.
Óskar var einu sinni á leiksskýrslu hjá Grindavík í efstu deild karla í fyrrasumar, í lokaumferðinni gegn Víkingum.