Fotbolti.net
16.04.07 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Atli semur við Fjarðabyggð (Staðfest)

Guðmundur Atli í leik með Grindavík gegn Breiðablik í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar.

Guðmundur Atli í leik með Grindavík gegn Breiðablik í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Guðmundur Atl Steinþórsson skrifaði um helgina undir tveggja ára samning við Fjarðabyggð en hann kemur til félagsins frá Grindavík þar sem hann lék á síðustu leiktíð.
Guðmundur Atli hefur verið hjá Fjarðabyggð síðan í febrúar og hefur áþeim tíma skorað átta mörk í fjórum leikjum í Lengjubikarnum og í kjölfarið ákváðu forráðamenn félagsins að semja við hann út tímabilið 2008.

Guðmundur Atli sem verður tvítugur í ár lék fjóra leiki með Grindavík í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar og einn leik í VISA-bikarnum.

Áður lék hann með HK og BÍ en sumarið 2005 lék hann tvo leiki í fyrstu deildinni með Kópavogsfélaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.