16.05.06 - 11:48
Magnús Már Einarsson
Slóveni til Víkings Ólafsvík (Staðfest)

Leikmenn Víkings fagna eftir jafnteflið gegn Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leikmenn Víkings fagna eftir jafnteflið gegn Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur Ólafsvík er að fá slóvenskan miðjumann að nafni Matej Grobovsek til liðs við sig en þetta kemur fram á heimasíðu liðsins nú í dag.
Grobovsek sem er 23 ára hefur leikið í næstefstu deild í heimalandi sínu að undanförnu með Dravograd. Honum er ætlað að koma í stað Craig Campbell á miðjuna hjá Víking en sá síðarnefndi getur ekki leikið með Ólsurum í sumar vegna meiðsla.
Víkingur náði óvæntu jafntefli á útivelli gegn Fram í fyrstu umferð fyrstu deildarinnar á sunnudaginn en liðið mætir Þrótti á heimavelli næstkomandi sunnudag.
Víkingur náði óvæntu jafntefli á útivelli gegn Fram í fyrstu umferð fyrstu deildarinnar á sunnudaginn en liðið mætir Þrótti á heimavelli næstkomandi sunnudag.
