16.05.06 - 13:02
Magnús Már Einarsson
Grindavík fær skoskan markvörð (Staðfest)

Fá markvörð frá Skotlandi.

Mynd: Fótbolti.net - Bjarni M. Svavarsson

Fá markvörð frá Skotlandi.

Mynd: Fótbolti.net - Bjarni M. Svavarsson
Grindavík hefur fengið 25 ára markvörð að nafni Colin Stewart til liðs við sig og mun hann berjast við Helga Má Helgason um markvarðarstöðuna auk þess að sjá um markvarðaþjálfun hjá félaginu.
,,Hann verður markmannsþjálfari í meistaraflokknum og alveg niður yngri flokkana," sagði Sigurður Jónsson þjálfari Grindvíkinga við Fótbolti.net í dag. ,,Hann tekur þjálfun og er náttúrulega leikmaður líka og þetta er staða sem við höfum þurft samkeppni í. Pabbi hans var gamall landsliðsmaður, Tim Stewart," bætti Sigurður við.
Stewart hefur leikið með liðum eins og Ipswich, Kilmarnock, Queens Park, Hamilton, Alloa og Ross County en í vetur var hann á mála hjá Patrick Thistle í Skotlandi.
Stewart hefur leikið með liðum eins og Ipswich, Kilmarnock, Queens Park, Hamilton, Alloa og Ross County en í vetur var hann á mála hjá Patrick Thistle í Skotlandi.
