16.05.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Fannar Freyr Gíslason í HK (Staðfest)

Mynd: Heimasíða ÍA

Mynd: Heimasíða ÍA
HK hefur fengið framherjann Fannar Frey Gíslason á láni frá ÍA en félagaskiptin gengu í gegn í gærkvöldi rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði.
Fannar Freyr er tvítugur og kom inná sem varamaður hjá Skagamönnum gegn HK í leik liðanna á Kópavogsvellinum á föstudagskvöldið.
Fannar kom til ÍA frá Tindastóli í fyrra en hann hafði þá leikið með meistaraflokki Sauðkrækinga frá 15 ára aldri.
Síðastliðið sumar spilaði Fannar einn leik með ÍA í fyrstu deildinni en frá 2006-2009 skoraði hann fimm mörk í 30 leikjum með Tindastóli.
Skagamenn lánuðu einnig Ragnar Þór Gunnarsson og Emil Sævarsson í Kára í gær en þeir eru að koma til baka eftir meiðsli.

Heimild: Heimasíða HK | Heimasíða ÍA