16.05.11 - 07:21
Magnús Már Einarsson
Framherji frá Senegal í Selfoss (Staðfest)

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Selfoss fékk í gær senegalska framherjann Sena Abdalha til liðs við sig en hann er væntanlegur til Íslands eftir tvær vikur.
Þessi 18 ára framherji átti að koma á svipuðum tíma og hinir Afríkuleikmennirnir hjá Selfyssingum en sökum þess að hann var ekki orðinn 18 ára fékk hann ekki atvinnuleyfi á Íslandi strax.
Fyrr í vetur fengu Selfyssingar Babacar Sarr, Ibrahima Ndiaye og Sidy Sow til liðs við sig og þeir hafa leikið með liðinu undanfarnar vikur.
Babacar og Sidy Sow eru frá Senegal líkt og Sena en Ibrahima kemur hins vegar frá Malí.

Heimild: Selfoss.org