16.05.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Geir, Kolbeinn og Erlingur í Árborg (Staðfest)

Geir og Kolbeinn Kristinssynir.

Mynd: Björninn

Geir og Kolbeinn Kristinssynir.

Mynd: Björninn
Árborg úr annarri deild fékk þrjá leikmenn til liðs við sig áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gær.
Tvíburabræðurnir Geir og Kolbeinn Kristinssynir komu til félagsins á láni frá Fjölni.
Geir og Kolbeinn eiga báðir leiki að baki með meistaraflokki Fjölnis en þeir hafa leikið með Birninum í þriðju deildinni á undirbúningstímabilinu þar sem þeir unnu meðal annars C-deild Lengjubikarsins.

Geir og Kolbeinn þekkja aðra deildina þar sem þeir léku síðari hlutann á síðasta tímabili með Völsungi.
Þá fékk Árborg einnig bakvörðinn Erling Ingason til liðs við sig frá Ými í gær en hann er uppalinn í HK.
Árborg tapaði 4-2 gegn Njarðvík í fyrstu umferðinni í annarri deild um helgina en liðið mætir nágrönnum sínum Hamar í annarri umferðinni.