Fotbolti.net
16.05.11 - 08:00
Magnús Már Einarsson

Róbert Örn í ÍR (Staðfest)

Róbert Örn í ÍR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

ÍR hefur fengið markvörðinn Róbert Örn Óskarsson á láni frá Víkingi R. en þetta staðfesti Haraldur Haraldsson framkvæmdastjóri síðarnefnda félagsins á Twitter síðu sinni í gærkvöldi.
Þorsteinn V. Einarsson, aðalmarkvörður ÍR-inga, er meiddur og Brynjar Örn Sigurðsson úr öðrum flokki félagsins var í markinu í 2-1 sigrinum á BÍ/Bolungarvík um helgina.

Róbert Örn lék með FH í öðrum flokki áður en hann fór til KS/Leifturs á láni sumarið 2008.

Undanfarin tvö tímabil hefur hann síðan leikið með BÍ/Bolungarvík og ekki misst úr leik.

Í vetur ákvað Róbert að ganga í raðir Víkings en hann er nú kominn til ÍR-inga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.