Fotbolti.net
16.05.11 - 12:04
Hörður Snævar Jónsson

Maradona ráðinn til Al Wasl (Staðfest)

Maradona ráðinn til Al Wasl (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Diego Armando Maradona hefur verið ráðinn þjálfari hjá Al Wasl í Dubaí en frá þessu var greint í dag.
Maradona mun skrifa undir tveggja ára samning við félagið í næsta mánuði.

Hann hefur verið í fríi frá knattspyrnu í tæpt ár eftir að hafa hætt með Argentínu eftir HM síðasta sumar.

Ljóst er að peningar hafa einhver áhrif á ákvörðun Maradona að taka starfið en efni samnings voru ekki rædd í fréttatilkyningu sem frá félaginu.

Maradona er fimtugur að aldri en hann er að margra mati besti knattspyrnumaður heims fyrr og síðar.

Heimild: 442

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.