Fotbolti.net
16.05.23 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson

Marmoush til Frankfurt (Staðfest)

Marmoush til Frankfurt (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Evrópudeildarmeistararnir frá því í fyrra hafa tilkynnt nýjan leikmann sem kemur á frjálsri sölu frá Wolfsburg.

Sá heitir Omar Marmoush og gengur í raðir Frankfurt í sumar. Hann gerir fjögurra ára samning við félagið eftir fimm ár hjá Wolfsburg.

Marmoush er 24 ára framherji með 17 landsleiki að baki fyrir Egyptaland. Hann getur leikið sem fremsti sóknarmaður og á báðum köntum.

Marmoush kemur til að styrkja hóp Frankfurt sem er að missa lykilmenn frá sér á frjálsri sölu í sumar. Frankfurt er einnig að missa af Evrópudeildarsæti eftir slæmt gengi undanfarnar vikur.

Marmoush er kominn með 5 mörk fyrir Wolfsburg á tímabilinu, í 31 leik þar sem hann hefur þó oftast komið inn af bekknum.

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern9+2021
2Dortmund9+921
3Freiburg9+1019
4RB Leipzig9+1418
5Leverkusen9+316
6Werder9+215
7Elversberg9-113
8Stuttgart9012
9Hoffenheim9-112
10Frankfurt9-512
11Hamburger9-1012
12Mainz9-110
13Paderborn9-310
14Augsburg909
15Köln9-49
16Union Berlin9-147
17Schalke 049-66
18Gladbach9-134
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.