Pólski sóknarmaðurinn Robert Lewandowski yfirgefur Barcelona þegar samningur hans rennur út í sumar. Þetta staðfesti hann á Instagram í dag.
Lewandowski, sem er 37 ára gamall, var markahæsti leikmaður spænsku deildarinnar á fyrsta tímabili sínu með Barcelona og þrisvar með þriggja efstu í baráttu um markakóngstitilinn.
Á fjórum árum hans hjá félaginu hefur hann skorað 119 mörk í 191 leik, en nú er komið að kveðjustund.
Spænskir miðlar segja Barcelona hafa boðið Lewandowski nýjan samning á slakari kjörum sem framherjinn hafnaði, en hann er sagður með betri tilboð frá Bandaríkjunum og Sádi-Arabíu.
Lewandowski birti kveðjumyndband á Instagram sem staðfestir fréttir spænskra miðla. Hann er á förum eftir farsælan tíma með Barcelona og heldur því aftur á vit ævintýranna.


