16.06.06 - 07:40
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Fabio Simplicio til Palermo (Staðfest)

Fabio Simplicio

Mynd: Getty Images

Fabio Simplicio

Mynd: Getty Images
Brasilíski kantmaðurinn Fabio Simplico gekk endanlega í raðir Palermo frá Parma í gærkvöldi en viðræðurnar höfðu verið í gangi í þó nokkuð langan tíma.
Simplicio, sem er 26 ára gamall, skoraði tíu mörk í 37 leikjum fyrir Parma á síðasta tímabili og stóðst læknisskoðun með prýði en ekki var greint frá hversu háa upphæð Palermo þurftu að borga fyrir leikmanninn.
Þá greindu 'Rosanero' einnig frá því að þeir hafa nú keypt 50% í varnarmanninn Maurizio Ciaramitaro hjá Cesena en þeir höfðu áður fengið til liðs við sig þá Alberto Fontana, Roberto Guana og Francesco Parravicini.
Þá eru þeir einnig orðaðir við ítalska landsliðsmanninn Aimo Stefano Diana hjá Sampdoria og varnarmanninn efnilega Mattia Cassani hjá Verona.