16.06.11 - 13:12
Magnús Már Einarsson
Kevin Nolan til West Ham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
West Ham hefur keypt miðjumanninn Kevin Nolan frá Newcastle fyrir óuppgefna upphæð.
Nolan, sem er 28 ára, skrifaði undir fimm ára samning við West Ham en hann þekkir Sam Allardyce stjóra félagsins vel síðan hjá Bolton á sínum tíma.

,,Að eiga möguleika á að vinna aftur með Sam skipti miklu máli og það er frábært fyrir mig að ganga til liðs við svona stórt félag,\" sagði Nolan.
,,Ég er mjög leiður yfir því að yfirgefa Newcastle en ég er að koma í annað stórt félag að mínu mati og vonandi gengur mér jafn vel þar.\"
Nolan hafnaði nýjum samningi við Newcastle á dögunum en hann var í lykilhlutverki hjá liðinu á síðasta tímabili þegar hann skoraði tólf mörk.

Heimild: Heimasíða West Ham