Heimild: Football Italia
Mohamed Salah leikmaður Liverpool hefur víst hafnað 170 milljón evra skiptum yfir í Juventus.
The Mirror greinir frá því í frétt sinni að bæði Real Madrid og Juventus hafi verið að undirbúa 150 milljón punda boð í Salah
Þar er einnig sagt að Salah hafi hafnað vegna þess að þetta sé ekki rétti tíminn til að yfirgefa Liverpool en gæti skoðað málið næsta sumar.
Hinn 27 ára gamli hefur skorað 71 mark í 107 leikjum mep Liverpool síðan hann kom frá Roma árið 2017 og vann Meistaradeildina með þeim um daginn.
Lítur út fyrir að Salah líður eins og hann eigi enn eitthvað óklárað hjá Liverpool og mun því ekki fara frá félaginu í sumar.
Athugasemdir