16.07.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Halldór Jón í Tindastól (Staðfest)

Mynd: Valgeir Kárason

Mynd: Valgeir Kárason
Tindastóll hefur fengið miðjumanninn Halldór Jón Sigurðsson til liðs við sig frá ÍA.
Þessi 25 ára gamli leikmaður hefur leikið fjóra leiki með ÍA í sumar en núna mun hann fara aftur í Tindastóls þar sem hann hefur leikið lengst af á sínum ferli.
Halldór lék með Víkingi Reykjavík 2005 og 2006 og eftir stutt stopp í Leikni R. þá gekk hann aftur í raðir Tindastóls sumarið 2007.
Í fyrra skoraði Halldór Jón fjögur mörk í tuttugu leikjum með Tindastóli í annarri deildinni en hann gekk síðan til liðs við ÍA í vetur.
Halldór Jón er kominn með félagaskipti í Tindastól og verður því með liðinu gegn Gróttu í 2.deildinni á laugardag.