16.07.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Jóhann Ingi aftur í Fjarðabyggð (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjarðabyggð hefur fengið miðjumanninn Jóhann Inga Jóhannsson að nýju frá HK.
Jóhann Ingi hefur undanfarin þrjú tímabil verið á mála hjá Fjarðabyggð þar sem hann hefur leikið 57 deildarleiki og skorað í þeim þrjú mörk.
Í vetur ákvað hann að ganga aftur til liðs við til gamla félag HK en þessi 25 ára gamli miðjumaður kom 17 ára gamall til HK frá Val á Reyðafirði.
Jóhann hefur fengið fá tækifæri með HK í sumar og núna er hann farinn aftur í Fjarðabyggð en hann getur leikið með liðinu gegn Aftureldingu á laugardaginn.

Heimild: Heimasíða Fjarðabyggðar