Fotbolti.net
16.07.09 - 15:47
Hafliði Breiðfjörð

Stewart Downing til Aston Villa (Staðfest)

Stewart Downing er orðinn leikmaður Aston Villa.

Stewart Downing er orðinn leikmaður Aston Villa.

Canon

Mynd: Getty Images

Stewart Downing er genginn í raðir Aston Villa frá Middlesbrough og gerði fjögurra ára samning við félagið. Þetta var staðfest nú rétt í þessu en kaupverðið er talið vera 12 milljónir punda.
Downing sem er 24 ára gamall komst í gegnum læknisskoðun hjá félaginu á fimmtudaginn en hann er að jafna sig eftir aðgerð á fæti fyrr í sumar.

Hann hafði meiðst í lokaleik tímabilsins með Middlesbrough en það var einmitt leikur gegn hans nýja félagi, Aston Villa er Stiliyan Petrov tæklaði hann.

Downing ætti að vera orðinn klár í slaginn í október en Martin O\'Neill stjóri Villa ákvað samt að kaupa hann. Tottenham hafði einnig áhuga en Aston Villa vann kapphlaupið.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.