16.07.09 - 17:16
Magnús Már Einarsson
Andri Steinn Birgisson í Fjölni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Steinn Birgisson hefur gengið til liðs við Fjölni en þetta staðfesti Einar Hermannsson formaður meistaraflokksráðs hjá félaginu við Fótbolta.net nú síðdegis.
Andri Steinn fór frá norska félaginu Asker fyrr í vikunni og hann hefur núna samið við Fjölni út tímabilið.
Þessi 25 ára gamli miðju og sóknarmaður gekk í raðir Asker síðastliðið haust eftir þriggja ára dvöl í Grindavík.
Andri Steinn þekkir vel til hjá Fjölni því að hann hóf meistaraflokksferil sinn hjá félaginu. Síðan þá hefur hann einnig leikið með Fylki, Fram, Aftureldingu og Víkingi R. en nú er hann kominn aftur í sitt gamla félag.
Koma Andra Steins er góður liðsstyrkur fyrir Fjölni en ef allt gengur eðlilega fyrir sig ætti hann að geta leikið með liðinu gegn KR í Pepsi-deildinni næstkomandi sunnudagskvöld.